Boðað hefur verið til aðalfundar rekstrarfélags Grasrótarmiðstöðvarinar, mánudaginn 30. apríl kl. 18.00.
Dagskrá
Undir dagskrárlið #7 verður meðal annars til umræðu og afgreiðslu endurskoðun á samþykktum félagsins. Ákveðið hefur verið af stjórn að tillögur að breytingum sé öllum frjálst að bera fram og verði allar nothæfar tillögur teknar til efnislegrar meðferðar og afgreiðslu, með því skilyrði að þær berist skriflega eigi síðar en á miðnætti sunnudaginn 29. apríl og óskast sendar á á tölvupóstfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Félög og hópar sem eiga aðild að mistöðinni eða eru áhugasöm um þáttöku í starfseminni eru hvött til að mæta og mun stjórn rekstarfélagsins taka á móti umsóknum um aðild. Nú þegar eiga eftirfarandi hópar og samtök aðild að rekstrinum:
26. mars 2012
Núna eftir áramótin hafa verið haldnir allnokkrir mjög athyglisverðir laugardagsfundir í Grasrótarmiðstöðinni. Þegar innhald þeirra er skoðað kemur í ljós að langflestir hafa fjallað um það sem brennur á þjóðinni; þ.e. efnahagsmálin og lýðræðið. Fundirnir hafa allfelstir verið teknir upp en uppbygging þeirra hefur venjulegast verið sú að fyrst er fyrirlestur og þá umræður í kjölfarið. Það skal tekið fram strax í upphafi að umræðurhluti allra fundanna, nema þess fyrsta, bíða klippingar.
Til að gera upptökurnar aðgegnilegri þeim sem hafa áhuga á að kynna sér innihald þeirra hafa verið úbúnir afspilunarlistar með hverjum fyrirlestri. Hér eru krækjur inn á hvern fyrir sig með nafni fyrirlesara, heiti erindisins og hvenær hann var fluttur.
Alda - Félag um sjálfbærni og lýðræði: Lýðræði er lykillinn. Flutt 21. janúar 2012. Kristinn Már Ársælsson og Guðmundur D. Haraldsson kynnir félagið og hugmyndir þess um lýðræðislega stjórnmálaflokk. (Það er rétt að taka það fram að það er búið að klippa allt efnið frá þessum fundi)
Hagmunasamtök heimilanna: Verðtryggður lánavandi. Flutt 28. janúar 2012. Andrea J. Ólafsdóttir, formaður samtakanna, segir frá baráttumálum samtakanna, undirskriftarsöfnunininn, viðtökum almennings og viðbrögðum stjórnvalda, fjármálafyrirtækja og fræðamannasamfélagsins.
Jón Þór Ólafsson: Valdið til fólksins. Flutt 4. febrúar 2012. Jón Þór, höfundur bókarinnar The Game of Politics, dregur upp mynd af íslensku valdakerfi og bendir grasrótinni á vænlegustu leiðirnar til að hafa áhrif til árangurs.
Ólafur Ísleifsson: Lífeyrissjóðirnir í ólgusjó. Futt 11. febrúar 2012. Ólafur, sem er hagfræðingur og lektor við viðskiptadeild Háskóla Reykjavíkur, fjallar um þróun lífeyrissjóða og margvíslegar brotalamir á lífeyrissjóðakerfinu m.a. út frá þá nýútkominni skýrslu nefndar sem var skipuð af Landssamtökum lífeyrissjóða.
Þorbjörn Broddason: Samfélagsleg ábyrgð samfélagsfirrtra fjölmiðla. Flutt 18. febrúar 2012. Þorbjörn, sem er prófessor við Háskóla Íslands, fjallar um skoðunarmótandi áhrif fjölmiðla, hraðskreiða þróun fjölmiðalmarkaðarins sem kemur m.a. fram í breyttu eignarhaldi og möguleikum til miðlunar.
Marinó G. Njálsson: Gengisdómar Hæstaréttar. Flutt 25. febrúar 2012. Marinó, sem er þekktastur fyrir bloggskrif um lánamál, fjallar um þýðingu dóms nr. 600/2011 um gengislánin.
Svanur Kristjánsson: Var Búsáhaldabyltingin til einskis? Flutt 3. mars 2012. Svanur, sem er prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir frá niðurstöðum úr könnunar um mótmælin í janúar 2009, árangurinn af Búsáhaldabyltingunni og hvernig honum verði best fylgt eftir.
Frosti Sigurjónsson: Hvers vegna er skynsamlegt að leggja aðildarumsókn til hliðar? Flutt 10. mars 2012. Frosti, sem er rekstrarhagfræðingur, dregur fram svar við þessari spurningu með því að skoða breytingarnar sem hafa orðið á ESB og afstöðu þjóðarinnar til aðildar.